|
Norræni
byggingardagurinn á Íslandi á bakgrunn í
ráðstefnum arkitekta á Noðurlöndum allt frá
síðustu aldamótum. Í tímariti iðnaðarmanna
árið 1927 segir Guðmundur H. Þorláksson frá
ráðstefnu í Stokkhólmi sem Svíar kalla
Nordisk Bygnadsdag. Fara hér á eftir nokkrir
kaflar úr grein hans:
"Ráðstefna þessi er þannig tilkomin, að
síðastliðin 30 ár hafa norrænir
byggingarmeistarar (Arkitektar) árlega
haldið fund með sjer, til að auka
viðkynningu, ræða ýms mál er snertir
stjettina, skoða og læra hver af öðrum.
Fundir
þessir hafa verið haldnir í norrænu löndunum
á víxl.
Á síðasta
fundinum í Helsingfors í Finnlandi 1926 komu
þeir sjer saman um, að fundir þessir þyrftu
að ná til allra Iðnaðarmanna í
byggingarfaginu, svo þeir einnig fengju
tækifæri til að kynnast og læra hver af
öðrum, og var samþykkt að halda almenna
norræna ráðstefnu og sýningu í Stokkhólmi
1927.
Formaður
og frumkvöðull ráðstefnunnar var prófessor
Ragnar Östberg sá er bygt hefur ráðhúsið í
Stokkhólmi og talinn er einhver þektasti
byggingarmeistari Norðurálfunnar".
"Ráðstefnan hófst fimtudaginn 9. júní í
sönghöllinni, að viðstöddum konungi Svía og
forsætisráðherra, ennfremur sendiherrum
Norðmanna, Dana og Finnlendinga. Á
ráðstefnunni voru mættir 688 Svíar, 98
Norðmenn, 58 Danir, 117 Finnlendingar og 2
Íslendingar. 38 fyrirlestrar voru haldnir,
þar af hjeldu Svíar 18, Norðmenn 9, Danir 7
og Finnlendingar 4. Fyrirlestrar þessir voru
um ýmisleg byggingarmálefni og verður ef til
vill eitthvað af þeim birt síðar í
Tímaritinu".
"Iðnsýningar voru 4 um þetta leiti í
Stokkhólmi og var þar margt nýtt og
merkilegt að sjá. Meðal annars var þar
heimilisiðnaðarsýning frá öllum Norðurlöndum
- Íslandi einnig. Íslenska sýningin var
auðvitað minst fyrirferðar, en það sem þar
var sýnt var sýnendum áreiðanlega til sóma".
"Okkur
Íslendingum var prýðilega tekið hvar sem við
komum. Mikinn sóma sýndu Svíar okkur með því
að draga fána á stöng við hliðina á
Norðurlanda-fánunum hinum og með því að
bjóða okkur sjerstaklega í veislu er
þátttakendur hjeldu sameiginlega á stærsta
veitingahúsinu í Stokkhólmi".
"Samþykkt
var að halda samskonar ráðstefnu og sýningar
á 5 ára fresti í löndunum á víxl og verður
næsta ráðstefna haldin í Finnlandi 1932. En
1952 komum við til Íslands, sagði prófessor
R. Östberg, og hann er nú sextugur að
aldri".
|